28.10.2008 | 16:58
Vinir í raun
Ég hef átt því láni að fagna að hafa komið til Færeyja og kynnst eðal fólki þar og þaðan og góðan vinarbæ eigum við í Færeyjum. Það vinarþel sem þeir sýna okkur nú sem og endranær er einstakt en kannski ekki óvænt fyrir þá sem til þekkja, svo góðir vinir og frændur hafa þeir alltaf verið. Þessi mikla aðstoð bjargar kannski ekki öllu hjá okkur en þetta virkilega telur kannski ekki síst fyrir þjóðarsálina og eflir enn frekar vináttuböndin milli frændþjóðanna. Og hver veit nema að þetta marki nýtt upphaf hjá okkur við að snúa erfiðri stöðu við því það munum okkur takast með góðri hjálp. Þetta framlag eru miklir peningar fyrir lítið samfélag eins og Færeyjar og stór ákvörðun fyrir litla þjóð að taka og það er einstaklega ánægjulegt að sjá að að þessu standa allir stjórnmálaflokkar í Færeyjum.
Þó við séum eyland þá stöndum við ekki ein, það hafa frændur okkar í Færeyjum sýnt okkur í dag!
Færeyingar vilja lána Íslandi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
22.10.2008 | 10:34
Ef þetta væri almennt svona á Bretlandi og í Danmörku!
Já, það er erfitt að trúa því að þetta geti verið almennt þannig í Bretlandi og Danmörku að við séum öll úthrópuð vegna bankahrunsins hér heima en hvað ef? Getum við þá verið hissa á því að það skuli vera þúsundir starfsmann sem vinna við að koma í veg fyrir hryðjuverk í sínum eigin löndum eins og framkoman er gagnvart okkur, vel upplýsta þjóð?
Ef almenningur og ríkistjórn Bretlands snýst jafn harkalega gegn almennum borgurum hjá smáþjóð eins og okkar vegna bankahruns sem almenningur á Íslandi hefur ekkert með að gera, verður þá ekki framhaldinu auðveldar fyrir þetta sama fólk í Bretlandi og Danmörku að átta sig á því að það skuli vera til hópar t.d. í Írak og Saudi- Arabíu sem er meinilla við þá? Þetta eru jú þjóðir sem hafa birt skopmyndir, haldið úti herjum í þeirra löndum í nafni lýðræðis og réttlætis! Nú er ég að sjálfsögðu ekki að réttlæta hryðjuverk, þau eru eitt það versta sem til er í heiminum og við Íslendingar munum vonandi alltaf fara gegn þeim án vopnavalds hvar sem þau eru. En nú er verið að fremja "hryðjuverk" á Íslendingum í Bretlandi, hvenær ætlar stjórn fyrrverandi heimsveldis að átta sig á því og koma fram við okkur að heiðarleika og á sama hátt og þeir myndu gera við vina- og grannþjóðir sínar?
Óvelkomnar í gæludýraverslun í Glasgow | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
21.10.2008 | 14:03
Hefði mátt orða þetta betur!
Sjúkleg stundvísi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
27.9.2008 | 20:07
Besta liðið?
Það er erfitt að sjá að fullyrðing Heimis sé rétt varðandi besta liðið hvort sem er núna eða fyrr í sumar. Það er augljóst að Keflvíkinga vantaði vænan slatta af leikreynslu til þess að klára dæmið en FH nýtti hana vel í lokaleikjunum en ég tek það fram að ég alls ekki að gera lítið úr frábærum árangri Hafnarfjarðar liðsins heldur að segja mína skoðun á skoðun Heimis, þetta eru ekki liðin mín. Ef við horfum t.d. aðeins á lokaumferðina þá var það ljóst að leikurinn yrði Keflavíkingum erfiður, Framarar með lið sem hefur ekki gert neitt annað en að vaxa á tímabilinu á meðan Fylkir hefur verið eins og Melrakkasléttan öll allt sumarið, marflatir. Keflavíkingar eru í mínum huga besta fótboltalið á Íslandi í dag enda spiluðu þeir besta og skemmtilegasta fótboltann í Íslandsmótinu en FH ingar eru hinsvegar Íslandsmeistarar og nýttu hefðina og reynsluna fullkomlega í lokaumferðunum og eiga þeir mikið hrós skilið fyrir það, innilega til hamingju FH-ingar!
Heimir Guðjónsson: Gríðarlega stoltur af strákunum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
21.6.2008 | 20:38
Nokkur hópur manna?
Við Seyðfirðingar höfum fengið heilmiklar skammir á blogginu fyrir að fara á hugarflug varðandi breytingar á sumartíma og nú er talað um í mogganum um "nokkurn hóp manna"! Ég held nú reyndar að þetta sé ekki spurning um hvort heldur um hvenær tímanum verður breytt um annað hvort um einn eða tvo tíma. Vissulega er ákveðin sérstaða hér vegna fjallahringsins okkar og sólarleysis seinnipart dags og við því harðari í afstöðu en þeir sem hafa kvöldsólina í augunum um kl. 19.00, við glímum ekki við það að þurfa setja niður sólskyggnið í bílunum okkar, það er víst! En það sem mér finnst mikilvægast nú er að við leyfum okkur þann munað að ræða kosti þess og galla að breyta klukkunni án fordóma og sleggjudóma. Alla vega er mitt innlegg það að sumarið og sólin er svo skammur tími og hvað sem hver segir þá er hitinn hvort sem er hér fyrir austan, norðan, sunnan eða vestan farinn að falla nánast alltaf um kl. 19.00 eins og tíminn okkar er í dag. Fordómar hverjir sem þeir eru eru alltaf af því slæma finnst mér, ræðum þetta því í botn, niðurstaðan á eftir að koma á óvart, held ég :-)
Myrkir morgnar en björt kvöld | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 20:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
21.6.2008 | 19:50
Ótrúlegt!
Ég eiginlega trúi því ekki að nokkurum detti annað eins í hug en það sem mér finnst hinsvegar frábært og kemur reyndar ekki fram í fréttinni hvernig hvolpurinn fannst, en aðalatriði er að hvolpinu var bjargað :-)! Það er ekki langt síðan við eignuðumst okkar fyrsta hund sem heitir Tíbrá, frábært dýr sem veit sínu viti og ég er nokkuð öruggur um að hvolpurinn sem urðaður var í hrauninu í Kúagerði mun ekki gleyma því hver það var sem raðaði steinunum umhverfis hann!
Dýraníðings leitað | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 19:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
10.4.2008 | 11:31
Er þetta virkilega "frétt"???
Það er ótrúlegt hvað ratar stundum á síður blaðanna. Að svona nokkuð skuli þykja fréttnæmt er auðvitað stórskrítið, hvorn skóinn ætli Beckham hnýti á undan?
Beckham sektaður | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
15.3.2008 | 13:37
Hvað er Eiður Smári að meina?
Eiður Smári: Ánægður að við fengum ekki Chelsea | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggið
Neistinn
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar